Ljósmyndasýningin ,,Skrásetning kynslóðar" í Borgarbókasafni

Ljósmyndasýningin ,,Skrásetning kynslóðar" verður opnuð í Borgarbókasafninu, Grófarhúsi, 15. desember kl. 17.00. Þar sýnir Björn M. Sigurjónsson 15 ljósmyndaportrett af ungum íslenskum rithöfundum og listamönnum. Allt eru þetta höfundar sem hafa gefið út undir merkjum Nýhils en eiga það jafnframt sammerkt að hafa vakið athygli fyrir framsækna og nýja sýn í listsköpun sinni. Myndirnar eru teknar í vistkerfum skáldanna, á heimilum þeirra, þar sem sköpunarverkin verða til.
Á opnun sýningarinnar verður dagatal fyrir árið 2007 með úrvali sömu ljósmynda kynnt. Þá munu skáldin lesa upp úr nýlegum verkum sínum.
Þetta er önnun einkasýning Björn á þessu ári, fyrri sýningin á þessu ári var ,,Lífsýni", myndir af lífsýnum úr safni Landspítalans, og í þriðja sinn sem hann sýnir ljósmyndir sínar opinberlega. Sýninger er opin á opnunartíma Borgarbókasafnsins fram í janúar.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home